Evrópumeistararnir unnu fyrsta leik

Frakkar fagna sigri í dag.
Frakkar fagna sigri í dag. AFP

Frakkland vann fyrsta leik sinn á EM kvenna í handknattleik í Danmörku í dag þegar liðið mætti öflugu liði Svartfjallalands. 

Liðin leika í A-riðli með Danmörku og Slóveníu sem mætast í kvöld. Frakkland vann 24:23 en Frakkar sigruðu á EM fyrir tveimur árum. 

Í C-riðli vann Króatía lið Ungverjalands 24:22 en í riðlinum eru einnig Holland og Serbía sem mætast á morgun. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert