Á leið til Rússlands

Árni Vilhjálmsson í leik með Kolos Kovalivka í Úkraínu á …
Árni Vilhjálmsson í leik með Kolos Kovalivka í Úkraínu á síðasta ári. Ljósmynd/Kolos Kovalivka

Knattspyrnumaðurinn Árni Vilhjálmsson er þessa dagana til reynslu rússneska liðinu Krilia Sovetov.

Það var fótbolti.net sem greindi fyrstur miðla frá þessu en Krilija Sovetov leikur í rússnesku B-deildinni og er sem stendur í öðru sæti deildarinnar með 55 stig eftir 26 umferðir.

Efstu tvö lið deildarinnar fara beint upp í úrvalsdeildina en liðið í þriðja og fjórða sætinu mætast í umspili um laust sæti í efstu deild.

Árni hefur verið án félags síðan hann yfirgaf Kolos Kovalivka í Úkraínu síðasta sumar.

Framherjinn er uppalinn hjá Breiðabiki en hann hefur leikið í Póllandi, Úkraínu, Noregi og Svíþjóð á atvinnumannsferli sínum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert