Portúgalski markvörðurinn er látinn

Alfredo Quintana varði mark Portúgals í leikjunum þremur gegn Íslandi …
Alfredo Quintana varði mark Portúgals í leikjunum þremur gegn Íslandi í janúar. AFP

Al­fredo Quint­ana, markvörður portúgalska landsliðsins í handknattleik og Porto, er látinn aðeins 32 ára gamall. 

Porto tilkynnti um andlátið á samfélagsmiðlum í dag.

Eins og mbl.is greindi frá á dögunum hneig Quintana niður á æfingu með Porto í Portúgal. Fékk hann hjartastopp og var í lífshættu upp frá því. 

Alfredo Quintana var vel þekktur hjá íslensku handboltaáhugafólki enda hafa landslið Íslands og Portúgals mæst ítrekað. Liðin mættust þrívegis í janúar. Tvívegis í undankeppni EM. Annars vegar í Portúgal og hins vegar á Ásvöllum í Hafnarfirði. Þá mættust liðin á HM í Egyptalandi en einnig á EM í Svíþjóð í janúar í fyrra. 

Quintana lék allan sinn meistaraflokksferil með Porto og spannaði sá ferill ellefu ár. Hann lék 56 A-landsleiki fyrir Portúgal og hefur átt sinn þátt í því að Portúgal er á meðal tíu bestu landsliða í heimi. Þá er vert að geta þess að Porto er eitt sextán liða sem leika í Meistaradeild Evrópu, sterkustu félagsliðakeppni í íþróttinni.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert