Ljóst hvaða 16 leikmenn mæta Svíþjóð

Rut Arnfjörð Jónsdóttir og Ragnheiður Júlíusdóttir eru á sínum stað …
Rut Arnfjörð Jónsdóttir og Ragnheiður Júlíusdóttir eru á sínum stað í íslenska hópnum. Eggert Jóhannesson

Arnar Pétursson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handknattleik, hefur valið þá 16 leikmenn sem munu taka þátt í leik liðsins gegn Svíþjóð í 1. umferð riðils 6 í undankeppni Evrópumótsins á fimmtudag.

Íslenski hópurinn hélt af landi brott í morgun til Eskilstuna þar sem leikurinn mun fara fram klukkan 17 á fimmtudag.

Í síðustu viku valdi Arnar 19 leikmenn í æfingahóp og duttu því þrír leikmenn út fyrir verkefnið. Þetta eru þær Aldís Ásta Heimisdóttir og Ásdís Guðmundsdóttir úr KA/Þór og Saga Sif Gísladóttir, markvörður Vals.

Hópurinn í heild:

Markverðir:
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Ringkøbing Håndbold (30/0).
Hafdís Renötudóttir, Fram (28/1).

Aðrir leikmenn:
Berglind Þorsteinsdóttir, HK (0/0).
Díana Dögg Magnúsdóttir, BSV Sachsen Zwickau (23/20).
Elísa Elíasdóttir, ÍBV (0/0).
Harpa Valey Gylfadóttir, ÍBV (5/4).
Helena Rut Örvarsdóttir, Stjörnunni (42/80).
Hildigunnur Einarsdóttir, Val (81/82).
Lovísa Thompson, Val (24/50).
Ragnheiður Júlíusdóttir, Fram (31/41).
Rut Arnfjörð Jónsdóttir, KA/Þór (99/209).
Sandra Erlingsdóttir, EH Aalborg (3/5).
Sunna Jónsdóttir, ÍBV (58/43).
Thea Imani Sturludóttir, Val (45/58).
Tinna Sól Björgvinsdóttir, HK (3/5).
Unnur Ómarsdóttir, KA/Þór (29/28).

Tveir nýliðar eru í hópnum, þær Berglind Þorsteinsdóttir úr HK og Elísa Elíasdóttir úr ÍBV, en sú síðarnefnda er aðeins 17 ára gömul.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert