Serbar á blað í riðli Íslands

Serbneska landsliðskonan Kristina Liscevic. Serbar unnu öruggan sigur í dag.
Serbneska landsliðskonan Kristina Liscevic. Serbar unnu öruggan sigur í dag. AFP

Serbar fengu fyrstu stigin í riðli Íslands í undankeppni Evrópumóts kvenna í handknattleik í dag en serbneska liðið tók á móti Tyrkjum í Zrenjanin.

Lokatölur urðu 36:27 fyrir Serba eftir að staðan var 21:13 í hálfleik. Ísland mætir Svíþjóð í Eskilstuna á morgun í hinum leiknum í fyrstu umferðinni og síðan eigast Ísland og Serbía við á Ásvöllum í Hafnarfirði á sunnudaginn klukkan 16.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert