Lætur af störfum í Garðabæ

Rakel Dögg Bragadóttir hefur látið af störfum í Garðabæ.
Rakel Dögg Bragadóttir hefur látið af störfum í Garðabæ. Ljósmynd/Þórir Tryggvason

Rakel Dögg Bragadóttir hefur látið af störfum sem þjálfari kvennaliðs Stjörnunnar í handknattleik. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í kvöld.

Rakel Dögg, sem er 35 ára gömul, tók við Stjörnuliðinu árið 2020 en liðið endaði í fimmta sæti deildarinnar undir hennar stjórn á síðustu leiktíð.

„Rakel hefur, eins og við vitum, átt frábæran feril sem leikmaður og hefur unnið fjöldan allan af titlum,“ segir í tilkynningu Garðbæinga.

„Starfsfólk félagsins, stjórnarmenn, leikmenn, stuðningsmenn og sjálfboðaliðar þakka Rakel fyrir sín störf og óska henni góðs gengis í framtíðinni,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Stjarnan er í fimmta sæti deildarinnar með 10 stig eftir tólf leiki, einu stigi minna en Íslandsmeistarar KA/Þórs sem eru í fjórða sætinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert