Íslendingaliðið Magdeburg er komið í bikarúrslit í þýska handboltanum þriðja árið í röð eftir 30:25 sigur á Füchse Berlin.
Gísli Þorgeir Kristjánsson var markahæstur Magdeburgar með 8 mörk og Ómar Ingi Magnússon skoraði 7 og nýtti öll 5 vítaköst sín. Janus Daði Smárason komst ekki á blað en átti 1 stoðsendingu
Magdeburg hefur tapað tveimur síðustu bikarúrslitaleikjum en mætir annað hvort Melsungen eða Flensburg í ár.