Ómar með stórleik í meistarakeppninni

Ómar Ingi Magnússon lék vel.
Ómar Ingi Magnússon lék vel. Eggert Jóhannesson

Füchse Berlin er meistari meistaranna í þýska handboltanum eftir sigur á Magdeburg, 31:30, í Düsseldorf í kvöld.

Íslendingunum í liði Magdeburgar verður ekki kennt um tapið. Ómar Ingi Magnússon skoraði níu mörk og lagði upp tvö til viðbótar.

Gísli Þorgeir Kristjánsson skoraði tvö mörk og lagði upp þrjú.

Magdeburg hefur leik í þýsku 1. deildinni með heimaleik gegn Wetzlar eftir viku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert