Arnar Birkir Hálfdánsson fór á kostum í stórsigri Amo gegn Skånela, 37:23, í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í dag.
Arnar skoraði sjö mörk fyrir Amo og var því markahæstur í dag ásamt hinum danska Mathias Mark Pedersen.
Amo er með þrjú stig eftir fyrstu tvær umferðirnar í sænsku úrvalsdeildinni. Liðið gerði 30:30 jafntefli gegn Karlskrona í síðustu umferð.