Rúnar hafði betur gegn Guðjóni Val

Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari Gummersbach.
Guðjón Valur Sigurðsson er þjálfari Gummersbach. Ljósmynd/Gummersbach

Leipzig hafði betur gegn Gummersbach, 34:29, í þýsku 1. deildinni í handbolta í dag. Rúnar Sigtryggsson þjálfar Leipzig en Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar Gummersbach.  

Elliði Snær Viðarsson, leikmaður Gummersbach, var markahæstur af Íslendingunum með fimm mörk. Andri Már Rúnarsson skoraði þrjú mörk fyrir Leipzig.  

Teitur Örn Einarsson náði ekki að koma sér á blað fyrir Gummersbach en hann lagði upp eitt mark.  

Leipzig situr í sjöunda sæti deildarinnar með fjögur stig eftir þrjár umferðir. Gummersbach er í 12. Sæti með tvö stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert