Morgan Marie Þorkelsdóttir, leikmaður Íslands- og bikarmeistara Vals í handbolta, er á leið í aðgerð á hné. Handbolti.is greinir frá þessu.
Hún hefur ekkert leikið með Val á leiktíðinni. Gert er ráð fyrir því að Morgan Marie verði nú frá keppni í fjóra til sex mánuði.
Morgan Marie var lykilleikmaður hjá Val á síðustu leiktíð þegar Valur varð Íslands- og bikarmeistari.