Rifja upp stórkostleg mörk Óðins

Óðinn í leiknum gegn Frakklandi.
Óðinn í leiknum gegn Frakklandi. AFP/Ina Fassbender

Óðinn Þór Ríkharðsson, landsliðsmaður í handbolta, er brögðóttur þegar hann kemst nálægt marki andstæðinganna.

Hornamaðurinn hefur skorað mörg einstaklega falleg mörk á ferlinum og handknattleikssamband Evrópu rifjar upp þrjú ógleymanleg á samfélagsmiðlum sínum í dag.

Tvö þeirra eru með svissneska liðinu Kadetten og eitt með íslenska landsliðinu, í leik gegn Frökkum á EM í byrjun árs.

Markið sem hann skoraði með landsliðinu var það besta, því það var blanda af sirkusmarki og skoti aftur fyrir bak, eftir sendingu frá Gísla Þorgeiri Kristjánssyni.

Sjón er sögu ríkari en mörkin má sjá hér fyrir neðan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert