Elliði Snær Viðarsson lét vel til sín taka þegar Íslendingalið Gummersbach vann öruggan útisigur á Stuttgart, 35:28, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í kvöld.
Eyjamaðurinn Elliði Snær skoraði sex mörk og var næstmarkahæstur í leiknum.
Teitur Örn Einarsson lék ekki með Gummersbach vegna meiðsla.
Guðjón Valur Sigurðsson þjálfar liðið, sem er í 11. sæti með 4 stig eftir fjóra leiki.