Evrópudeild karla í handbolta birti mynd og myndband af Aroni Pálmarssyni á X-reikningi deildarinnar í dag en FH hefur leik þann 8. október. Aron er eitt af stærstu nöfnum keppninnar í ár.
„Goðsögnin Aron Pálmarsson spilar í Evrópudeildinni með FH á tímabilinu. Eruð þið spennt?“ segir í færslunni en nokkur af glæsimörkum Arons fyrir landsliðið og Barcelona eru í meðfylgjandi myndbandi.
Auk FH munu Evrópubikarmeistarar Vals taka þátt í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í ár.
🎥👀 #ehfel #elm #allin pic.twitter.com/wVBWqv2WPh
— EHF European League (@ehfel_official) September 25, 2024