Fredericia að rétta sinn hlut

Guðmundur Þ. Guðmundsson þjálfar Fredericia.
Guðmundur Þ. Guðmundsson þjálfar Fredericia. Kristinn Magnússon

Guðmundur Þ. Guðmundsson og lærisveinar hans í Fredericia réttu nokkuð hlut sinn í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik með því að sigra Kolding á heimavelli í kvöld, 26:20.

Fredericia kom á óvart síðasta vetur þegar liðið hafnaði í öðru sæti eftir einvígi við Aalborg um danska meistaratitilinn og leikur í Meistaradeildinni í vetur. Liðið byrjaði hins vegar dönsku deildina frekar illa og tapaði tveimur af fyrstu þremur leikjum sínum en er nú með fjögur stig eftir fjóra leiki.

Arnór Viðarsson skoraði tvö mörk fyrir Fredericia í kvöld en Einar Þorsteinn Ólafsson var ekki á meðal markaskorara liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert