FH hafði betur gegn Fram í úrvalsdeild karla í handbolta í Úlfarsárdal í kvöld og FH hafði betur eftir spennandi lokasekúndur, 30:29.
FH er nú með 19 stig á topp deildarinnar en Fram með 15 í fjórða sæti.
Leikurinn var jafn til að byrja með, FH leiddi lengst af í fyrri hálfleik en það munaði aldrei meira en tveimur mörkum á liðunum. Fram var með yfirhöndina undir lok fyrri hálfleiks og spilaði sterka vörn sem skilaði þeim tveggja marka forystu inn í seinni hálfleik, 16:14.
Vörnin hjá Fram gekk ágætlega en markvarslan fylgdi ekki með. Í sókn voru þeir Þorsteinn Gauti Hjálmarsson og Reynir Þór Stefánsson að halda liðinu uppi með 13 af 16 mörkum Fram í fyrri hálfleik en auk þess fiskaði Reynir þrjú víti.
Hjá FH var Jóhannes Berg Andrason markahæstur með fimm mörk og Daníel Freyr Andrésson varði sjö skot þar af eitt víti.
FH-ingar voru ósannfærandi í upphafi seinni hálfleiks, Fyrsta skot þeirra var í stöngina og Breki Hrafn Árnason varði aðra tilraun þeirra og Fram komst fjórum mörkum yfir.
Fram var með yfirhöndina allan seinni hálfleik og voru mest fimm mörkum yfir en FH komst yfir þegar 16 sekúndur voru eftir af leiknum þegar Jakob Martin Ásgeirsson skoraði fyrsta mark sitt í leiknum úr hrapaupphlaupi og tryggði FH sigurinn.