Þessar 16 mæta Hollandi í dag

Dana Björg Guðmundsdóttir er í leikmannahópi Íslands.
Dana Björg Guðmundsdóttir er í leikmannahópi Íslands. Ljósmynd/Jon Forberg

Arnar Pétursson landsliðsþjálfari hefur valið þá 16 leikmenn sem spila gegn Hollandi í fyrsta leik Íslands á EM kvenna í handbolta í Innsbruck í Austurríki í dag. 

Ísland mætir Hollandi í dag, Úkraínu á sunnudaginn og loks Þýskalandi á þriðjudaginn í F-riðli Evrópumótsins. 

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, leikmaður Kristianstad í Svíþjóð, og Katrín Tinna Jensdóttir, leikmaður ÍR, hvíla í dag. 

Leikurinn hefst klukkan 17 en mbl.is er í Innsbruck og verður með leikinn í beinni textalýsingu. 

Hópurinn í heild sinni: 

Markverðir:
Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Aarhus (66/4)
Hafdís Renötudóttir, Valur (64/4)

Aðrir leikmenn:
Andrea Jacobsen, Blomberg-Lippe (58/101)
Berglind Þorsteinsdóttir, Fram (30/6)
Dana Björg Guðmundsdóttir, Volda (4/10)
Díana Dögg Magnúsdóttir, Blomberg-Lippe (58/77)
Elín Klara Þorkelsdóttir, Haukar (18/55)
Elín Rósa Magnúsdóttir, Valur (25/50)
Elísa Elíasdóttir, Valur (19/15)
Katrín Anna Ásmundsdóttir, Grótta (6/12)
Perla Ruth Albertsdóttir, Selfoss (54/118)
Rut Arnfjörð Jónsdóttir, Haukar (119/245)
Steinunn Björnsdóttir, Fram (53/80)
Sunna Jónsdóttir, ÍBV (96/66)
Thea Imani Sturludóttir, Valur (84/182)
Þórey Rósa Stefánsdóttir, Fram (142/407)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka