Staðfesta félagaskipti landsliðsmannsins

Elvar Örn Jónsson mun ganga til liðs við Magdeburg næsta …
Elvar Örn Jónsson mun ganga til liðs við Magdeburg næsta sumar. AFP/Ina Fassbender

Þýskalandsmeistarar Magdeburg hafa staðfest komu Elvars Arnar Jónssonar, landsliðsmanns í handbolta, til félagsins næsta sumar. 

Elvar Örn mun skrifa undir þriggja ára samning í Magdeburg en þar mun hann spila með Ómari Inga Magnússyni og Gísla Þorgeiri Kristjánssyni. 

Elvar Örn er leikmaður toppliðs Melsungen í þýsku deildinni en hann hefur verið hjá félaginu síðan 2021. 

Áður var hann hjá Skjern í Danmörku en Elvar er uppalinn Selfyssingur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka