Þorsteinn drjúgur í sigri

Þorsteinn Leó í leik með Porto.
Þorsteinn Leó í leik með Porto. mbl.is/Árni Sæberg

Landsliðsmaðurinn Þorsteinn Leó Gunnarsson fór á kostum fyrir Porto er liðið hafði betur gegn Horta, 38:27, í efstu deild portúgalska handboltans í dag.

Þorsteinn Leó skoraði sex mörk fyrir Porto en liðið situr í öðru sæti deildarinnar með 37 stig.

Stiven Valencia og félagar í Benfica unnu sannfærandi sigur gegn Vitória, 36:24, í dag.

Stiven skoraði fjögur mörk fyrir Benfica sem situr í þriðja sæti deildarinnar með 35 stig.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka