Landsmót hestamanna er hafið í sól og blíðu á Gaddstaðaflötum á Hellu á kynbótadómum í flokki hryssna 7 vetra og eldri. Fyrsta hross í braut var Askja frá Hofsstöðum í Garðabæ og Ævar Örn Guðjónsson. Hrossin koma í braut í stafrófsröð. Fyrir mót var Askja með 8,17 í aðaleinkunn en lækkaði lítillega og hlaut 8,06 í aðaleinkunn.