Christiano Ronaldo vonast eftir því að verða búinn að ná sér af meiðslum fyrir leik Portúgala og Englendinga í 8-liða úrslitum HM sem fram fer á laugardaginn. Ronaldo meiddist á læri í leik Portúgala og Hollendinga eftir ljótt brot frá Khalid Boulahrouz og þurfti að yfirgefa völlinn. ,,Ég verð að spila á móti Englendingum. Leikurinn er sérstakur fyrir mig þar sem ég spila á Englandi. Ég er marinn og aumur í lærinu en ég fæ góða meðferð hjá sjúkraliði okkar og verð vonandi klár í slaginn," sagði Ronaldo.