Salah fer á HM

Mohamed Salah.
Mohamed Salah. AFP

Mohamed Salah, sóknarmaðurinn skæði í liði Liverpool, er í HM-hópi Egypta í knattspyrnu sem valinn var í dag.

Óvissa hefur ríkt með þátttöku Salah á HM eftir að hafa meiðst illa á öxl í úrslitaleik Liverpool og Real Madrid í Meistaradeildinni í síðasta mánuði. Salah mun ekki koma  á móts við landsliðið fyrr en 9. júní en hann er á Spáni þar sem hann er í meðferð vegna axlarmeiðslanna.

Egyptar leika í A-riðli á HM ásamt Úrúgvæ, Rússlandi og Sádi-Arabíu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert