Leroy Sané, sóknarmaðurinn skæði í liði Englandsmeistara Manchester City, spilar ekki með heimsmeisturum Þjóðverja á heimsmeistaramótinu í Rússlandi sem hefst um miðjan mánuðinn.
Sané, sem átti frábært tímabil með Manchester City, var ekki valinn í 23 manna hópinn sem Joachim Löw landsliðsþjálfari Þjóðverja opinberaði í dag.
Manuel Neuer, markvörður Bayern München, er í hópnum en hann lék sinn fyrsta leik í átta mánuði um nýliðna helgi þegar Þjóðverjar töpuðu fyrir Austurríkismönnum 2:1.
Das ist der finale Kader für die #WM2018 🇩🇪 ⚽#DieMannschaft #ZSMMN pic.twitter.com/tvaIKLiEuz
— Die Mannschaft (@DFB_Team) June 4, 2018