King hetja Norðmanna gegn Panama

Joshua King skoraði eina mark Norðmanna gegn Panama í vináttuleik …
Joshua King skoraði eina mark Norðmanna gegn Panama í vináttuleik liðanna í dag. AFP

Noregur og Panama mættust í vináttuleik á Ullevaal-leikvanginum í Ósló í dag en leiknum lauk með 1:0 sigri Norðmanna. Það var Joshua King sem skoraði eina mark leiksins á 4. mínútu en norska liðið vann Ísland í vináttuleik á dögunum á Laugardalsvelli, 3:2.

Þetta var fjórði sigur Norðmanna í röð en Lars Lagerbäck, fyrrverandi landsliðsþjálfari íslenska landsliðsins, er þjálfari norska liðsins. Þetta var síðasti landsleikur Panama fyrir HM í Rússlandi sem hefst í næstu viku en liðið vann Trínidad og Tóbagó í apríl og gerði svo markalaust jafntefli við Norður-Íra í lok maí.

Panama er með Belgíu, Túnis og Englandi í G-riðli á HM í Rússlandi en fyrsti leikur liðsins verður gegn Belgum 18. júní í Sochi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert