Byrjunarlið Íslands - Hólmar Örn byrjar

Hólmar Örn Eyjólfsson byrjar sem hægri bakvörður gegn Gana í …
Hólmar Örn Eyjólfsson byrjar sem hægri bakvörður gegn Gana í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Landsliðsþjálfarinn Heimir Hallgrímsson hefur tilkynnt byrjunarlið sitt sem mætir Gana í vináttuleik í knattspyrnu á Laugardalsvelli í kvöld klukkan 20. Þetta er lokaleikur íslenska liðsins áður en HM í Rússlandi hefst í næstu viku.

Íslenska liðið flýgur til Rússlands á laugardaginn en liðið leikur í D-riðli heimsmeistaramótsins ásamt Argentínu, Króatíu og Nígeríu. Fyrsti leikur liðsins á HM er svo gegn Argentínu 16. júní á Spartak vellinum í Moskvu.

Heimir gerir nokkrar stórar breytingar frá tapleiknum gegn Noregi um síðustu helgi. Hólmar Örn Eyjólfsson kemur inn í liðið sem hægri bakvörður í staðinn fyrir Birki Má Sævarsson. Þá kemur Björn Bergmann Sigurðarson inn fyrir Jón Daða Böðvarsson og Gylfi Þór Sigurðsson byrjar á miðri miðjunni og Birkir Bjarnason færir sig út á vinstri kantinn.

Byrjunarlið Íslands má sjá hér fyrir neðan.

Hannes Þór Halldórsson
Ari Freyr Skúlason
Kári Árnason
Ragnar Sigurðsson
Hólmar Örn Eyjólfsson
Birkir Bjarnason
Emil Hallfreðsson
Gylfi Þór Sigurðsson
Jóhann Berg Guðmundsson
Björn Bergmann Sigurðarson
Alfreð Finnbogason

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert