Þær þjóðir sem taka þátt á heimsmeistaramótinu í Rússlandi eru nú í óðaönn að undirbúa sig áður en keppnin hefst og fóru nokkrir vináttulandsleikir fram í dag.
Ástralar, sem leika í C-riðli á HM, unnu 2:1-sigur á Ungverjum eftir fjörugar lokamínútur í Búdapest. Daniel Arzani kom Áströlum í forystu á 74. mínútu en heimamenn virtust hafa nælt í jafntefli þegar Ástralinn Trent Sainsbury stýrði boltanum í eigið net á 88. mínútu. Ungverjinn Tamás Kádár lék hins vegar eftir sama leik fjórum mínútum síðar og skoraði einnig sjálfsmark í uppbótartíma.
Marokkó, sem leikur í B-riðil á HM, vann Eistland 3:1-á útivelli. Younés Belhanda, Hakim Ziyech og Youssef Bennasser komu gestunum í þriggja marka forystu áður en Ats Purje klóraði í bakkann fyrir heimamenn.
Serbar úr E-riðli unnu svo 5:1-stórsigur á Bólivíu þar sem Aleksandar Mitrovic, leikmaður Fulham á Englandi, skoraði þrennu. Branislav Ivanovic, fyrrverandi leikmaður Chelsea, komst einnig á blað ásamt Adem Ljajic sem eitt sinn var á mála hjá Manchester United. Jhasmani Campos skoraði mark gestanna.
Svíþjóð og Perú, sem bæði leika á HM, gerðu svo markalaust jafntefli í Gautaborg. Betur gekk Dönum í Kaupmannahöfn þar sem þeir lögu Mexíkó að velli, 2:0, þökk sé mörkum Yussuf Poulsen og Christian Eriksen en bæði lönd taka þátt á HM.