Landsliðið komið til Rússlands

Landsliðsmenn Íslands á flugvellinum í Gelindzhik í Rússlandi.
Landsliðsmenn Íslands á flugvellinum í Gelindzhik í Rússlandi. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Landsliðsmenn Íslands lentu á flugvellinum í Gelendzhik í Rússlandi áðan eftir tæplega sex tíma flug frá Keflavík.

Þegar út var komið úr vélinni stillti hópurinn sér upp fyrir myndatöku áður en haldið var upp á hótel.

Á morgun verður opin æfing hjá landsliðinu í Gelendzhik. Fyrsti leikur er svo eftir slétta viku eða laugardaginn 16. júní þegar við mætum Argentínu.

mbl.is/Skapti Hallgrímsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert