Einstök stemning myndaðist þegar leikir Íslands á EM fyrir tveimur árum voru sýndir á Ingólfstorgi og á Arnarhóli. Allir leikir HM verða sýndir á Ingólfstorgi en lítil stemning var fyrir upphafsleiknum í dag þegar ljósmyndari mbl.is leit við.
Í byrjun leiks Rússlands og Sádi-Arabíu, sem hófst klukkan 15.00, var fyrst eingöngu hljóð og engin mynd. Eftir nokkrar mínútur kom myndin en í stað einnar stórrar myndar voru margar litlar myndir á skjánum. Eini áhorfandinn á svæðinu gafst fljótlega upp og lét sig hverfa.
Stemningin verður væntanlega meiri á laugardag þegar Ísland mætir Argentínu en leikurinn hefst klukkan 13.00. Auk Ingólfstorgs verða leikir Íslands sýndir í Hljómskálagarðinum, á túni við Vesturbæjarlaug, á matarmarkaðnum Box í Skeifunni, á Garðatúni, Rútstúni, Hjartagarðinum og Thorsplani.