Íslenski landsliðsmaðurinn Kári Árnason gæti verið á leið til BB Erzurumspor eftir HM í Rússlandi ef marka má tyrkneska miðilinn Sabah.
Samkvæmt fréttinni hrifust forráðamenn liðsins af frammistöðu Kára í leiknum á móti Argentínu og hefur þjálfari liðsins, Mehmet Altiparmak, lagt áherslu að fá hann til liðsins.
BB Erzurumspor mun spila í tyrknesku úrvalsdeildinni á næsta ári eftir að liðið sigraði Gaziantep í vítaspyrnukeppni í umspilsleik.
Kári hefur látið hafa eftir sér að hann útiloki ekki að fara aftur út í atvinnumennsku þrátt fyrir að hafa skrifað undir samning við Víking R. fáeinum vikum áður en hann fór til Rússlands með landsliðinu.