Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu æfði á Volgograd Arena í morgun, eða um hádegið að staðartíma, og bjó sig þar undir stóra leikinn gegn Nígeríu í lokakeppni heimsmeistaramótsins sem fer fram á morgun klukkan 15 að íslenskum tíma.
Eggert Jóhannesson ljósmyndari mbl.is fylgdist með fyrstu 15 mínútum æfingarinnar, þar til fjölmiðlamenn þurftu að yfirgefa leikvanginn samkvæmt reglum, og tók meðfylgjandi myndir: