Íslenska landsliðið í knattspyrnu æfði í hellirigningu á heimaslóðum við Svartahaf í morgun. Liðið flaug þangað fljótlega eftir leikinn í Volgograd í gærkvödi en staldrar ekki lengi við heldur flýgur til Roston við Don á morgun, þar sem Íslendingar mæta Króötum á þriðjudagskvöldið.
Helst bar til tíðinda að Jóhann Berg Guðmundsson æfði með liðinu á ný, en Jóhann hefur ekki verið með síðan hann meiddist í leiknum gegn Argentínu. Vonast er til að hann verði fær um spila gegn Króatíu.
Eggert Jóhannesson og Skapti Hallgrímsson mynduðu Íslendingana á æfingunni í morgun.
Hörður Björgvin Magnússon og Víðir Reynisson, öryggisstjóri KSÍ, léku sér í körfubolta við hliðina á æfingavellinum í morgun.
Skapti Hallgrímsson
Ragnar Sigurðsson á æfigunni í morgun. Nokkur spor voru saumuð í höfuð hans eftir leikinn í gærþ
Skapti Hallgrímsson
Hólmar Örn Eyjólfsson, Björn Bergmann Sigurðarson, Ari Freyr Skúlason og Sverrir Ingi Ingason.
Eggert Jóhannesson
Ragnar Sigurðsson, Kári Árnason, Rúrik Gíslason, Jón Daði Böðvarsson og Birkir Már Sævarsson á æfingu landsliðsins í Kabardinka í morgun.
mbl.is/Eggert Jóhannesson
Jóhann Berg Guðmundsson og Friðrik Ellert Jónsson, sjúkraþjálfari.
Skapti Hallgrímsson