Synir Íslands: Ómar Ingi Magnússon

Í öðrum þætti af Sonum Íslands heimsækjum við handbolta- og landsliðsmanninn Ómar Inga Magnússon, leikmann Magdeburg í Þýskalandi, en Ómar var útnefndur íþróttamaður ársins 2021.

Ómar Ingi, sem er 25 ára gamall, gekk til liðs við Magdeburg sumarið 2020 frá Aalborg í dönsku úrvalsdeildinni.

Hann er uppalinn á Selfossi en gekk til liðs við Val árið 2014 og lék með liðinu í tvö tímabil áður en hann hélt út í atvinnumennsku árið 2016 þegar hann gekk til liðs við Aarhus. Þaðan lá leiðin svo til Álaborgar þar sem hann lék í tvö tímabil, frá 2018 til 2020.

Hann var valinn besti leikmaður þýsku 1. deildarinnar á síðustu leiktíð og þá varð hann markahæsti leikmaður deildarinnar tímabilið 2020-21.

Hann lék sinn fyrsta A-landsleik gegn Tékklandi árið 2016 í Laugardalshöll en alls á hann að baki 66 landsleiki þar sem hann hefur skorað 216 mörk.

Heimsmeistaramótið í Svíþjóð og Póllandi, sem hefst í janúar, verður sjötta stórmót Ómars Inga.

Hægt er að horfa á þáttinn um Ómar Inga í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan eða á vefsíðu þáttanna, mbl.is/sport/synir-islands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert