„Mér finnst alltaf skemmtilegt að segja frá því þegar hann var í sjöunda flokki í fótboltanum,“ sagði Arndís Heiða Einarsdóttir, móðir Arons Pálmarssonar, fyrirliða íslenska karlalandsliðsins í handknattleik, í Sonum Íslands, vefþætti mbl.is sem framleiddur er af Studio M.
Aron, sem er 32 ára gamall, valdi fótboltann fram yfir handboltann þegar hann var á unglingsaldri en foreldar hans, þau Arndís Heiða og Pálmar Sigurðsson, sögðu skemmtilega sögu af leikmanninum í þáttunum.
„Hann var að fara að keppa, á 17. júní, á Kaplakrikavelli og þetta var leikur sem allir áttu að fá að taka þátt í,“ sagði Arndís Heiða.
„Aron byrjaði inn á og svo var búið að taka alla af velli nema Aron. Þjálfarinn kallar svo á hann og Aron neitar að fara út af.
Pabbi hans heyrir þetta, hleypur inn á völlinn, og hleypur á eftir honum. Þetta var orðið að hálfgerðum eltingarleik á milli þeirra þarna á tímabili,“ sagði Arndís Heiða meðal annars.