Annarri umferð Dominos deildar karla í körfuknattleik lýkur í kvöld með tveimur leikjum. KR fær Þór Þorlákshöfn í heimsókn og Keflavík mætir Haukum.
KR og Þór töpuðu bæði leikjum sínum í fyrstu umferðinni og Keflavík og Haukar unnu bæði sigra í þeirri umferð.
KR tapaði fyrir Stjörnunni í Ásgarði á föstudagskvöldið á sama tíma og Þór tapaði fyrir Keflavík í Þorlákshöfn. Haukur unnu svo öruggan sigur gegn Snæfelli.
Leikirnir hefjast klukkan 19.15 í kvöld og verða báðir í beinni textalýsingu á mbl.is. Leikjunum verða svo gerð góð skil með umfjöllun og viðtölum eftir leik.