Tryggvi með í stórsigri

Tryggvi Snær Hlinason.
Tryggvi Snær Hlinason. Valenciabasket.com

Tryggvi Snær Hlinason og samherjar hans í spænska meistaraliðinu Valencia unnu í kvöld stórsigur á Real Betis, 103:67, í spænsku 1. deildinni í körfuknattleik.

Tryggvi lék í hálfa sjöundu mínútu, skoraði 2 stig og tók 2 fráköst fyrir Valencia sem er í öðru sæti deildarinnar með 13 sigra í 19 leikjum. Real Madrid er á toppnum með 17 sigra í 19 leikjum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert