Toppliðið tapaði í Minneapolis

Jamal Crawford hjá Minnesota reynir að komast framhjá Chris Paul …
Jamal Crawford hjá Minnesota reynir að komast framhjá Chris Paul hjá Houston í leik liðanna í nótt. AFP

Minnesota Timberwolves hleypti fjöri í einvígið við Vesturdeildarmeistarana Houston Rockets í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA í körfuknattleik í nótt með því að vinna þriðja leik liðanna á heimavelli sínum í Minneapolis, 121:105.

Staðan er þá 2:1 fyrir Houston og fjórði leikurinn fer einnig fram í Minneapolis.

Jimmy Butler skoraði 28 stig fyrir Minnesota sem endaði í áttunda sæti Vesturdeildar og Jeff Teague skoraði 23 stig og átti 8 stoðsendingar. James Harden skoraði 29 stig fyrir Houston og Chris Paul 17.

Utah Jazz tók forystuna gegn Oklahoma City Thunder, 2:1, með sigri á heimavelli sínum í Salt Lake City, 115:102. 

Ricky Rubio var með þrefalda tvennu fyrir Utah, 26 stig, 11 fráköst og 10 stoðsendingar, Donovan Mitchell skoraði 22 stig og átti 11 fráköst og Joe Ingles var með 21 stig. Paul George skoraði 23 stig fyrir Oklahoma og Russell Westbrook var með 14 stig, 11 fráköst og 9 stoðsendingar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert