Úrslitarimmann hefst aðra nótt

Stephen Curry, Golden State.
Stephen Curry, Golden State. AFP

Úrslitarimma Golden State Warriors og Cleveland Cavaliers um NBA-titilinn í körfuknattleik hefst aðfaranótt föstudagsins í Oakland í Kaliforníu. 

Dagsetningar leikjanna liggja nú fyrir en þessi sömu lið mætast nú fjórða árið í röð. Golden State hefur tvívegis haft betur og er núverandi meistari. 

Liðin mætast aftur í Oakland aðfaranótt mánudagsins. Þá færa þau sig til Cleveland í Ohio og þriðji leikurinn er á dagskrá aðfaranótt fimmtudags. Sá fjórði er aðfaranótt laugardags, einnig í Cleveland.

Vinna þarf fjóra leiki til að verða meistari. Ef bæta þar við leikjum þá verður sá fimmti í Oakland aðfaranótt þriðjudags, sá sjötti aðfaranótt föstudagsins 15. júní í Cleveland og oddaleikur ef á þarf að halda í Oakland aðfaranótt mánudagsins 18. júní.

LeBron James, Cleveland.
LeBron James, Cleveland. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert