Anthony á leið í Houston

Carmelo Anthony hjá Oklahoma City Thunder.
Carmelo Anthony hjá Oklahoma City Thunder. AFP

Bandaríski körfuboltamaðurinn Carmelo Anthony er á leiðinni til Houston Rockets frá Oklahoma City Thunders. Anthony hefur tíu sinnum tekið þátt í Stjörnuleik NBA og var hann stigahæsti leikmaður deildarinnar árið 2013. 

Houston reynir nú að byggja upp lið sem getur barist um NBA-meistaratitilinn við Golden State. Hjá Houston eru stórstjörnurnar Chris Paul og James Harden fyrir. 

Anthony var aðeins í eitt ár hjá Oklahoma, en þar á undan var hann í sjö ár hjá New York Knicks. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert