Tindastóll fékk Stjörnuna í bikarnum

Urald King, leikmaður Tindastóls, sækir að Stjörnumanninum Hlyni Bæringssyni.
Urald King, leikmaður Tindastóls, sækir að Stjörnumanninum Hlyni Bæringssyni. mbl.is/Hari

Í hádeginu var dregið í 8-liða úrslitum Geysisbikars karla og kvenna í körfuknattleik og fram undan eru spennandi viðureignir.

Í karlaflokki mæta ríkjandi bikarmeistarar Tindastóls liði Stjörnunnar á heimavelli og í kvennaflokki leika bikarmeistarar Keflavíkur við Val. Leikirnir fara fram 20. og 21. janúar.

Drátturinn lítur þannig út:

Karlar:
KR - Grindavík
Tindastóll - Stjarnan
Njarðvík - Vestri
ÍR - Skallagrímur

Konur:
Keflavík - Valur
Breiðablik - ÍR
Stjarnan - Skallagrímur
Snæfell - Haukar

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert