Sjöundi sigur meistaranna í röð

Steph Curry var í stuði í nótt.
Steph Curry var í stuði í nótt. AFP

Meistarar Golden State Warriors eru á mikilli siglingu í NBA-körfuboltanum. Liðið vann sinn sjöunda leik í röð í nótt er það fór í heimsókn til Los Angeles og vann LA Clippers, 112:94. Steph Curry var sterkur að vanda og skoraði 28 stig. Golden State er komið upp fyrir Denver Nuggets og upp í toppsæti vesturdeildarinnar. 

D'Angelo Russell átti stórleik fyrir Brooklyn Nets sem vann 117:115-útisigur á Orlando Magic. Russell skoraði 40 stig og var stigahæsti leikmaður næturinnar í deildinni. Brooklyn er búið að vinna þrjá síðustu leiki sína og er í sjötta sæti austurdeildarinnar. 

Sigurganga Utah Jazz hélt áfram á heimavelli á móti Cleveland Cavaliers. Lokatölur í Utah urðu 115:99. Donovan Mitchell var stigahæstur hjá Utah með 24 stig og Rudy Gobert skoraði 19 stig og tók 15 fráköst. Utah er í sjöunda sæti vesturdeildarinnar. 

Úrslit næturinnar í NBA-körfuboltanum: 
Boston Celtics - Memphis Grizzlies 122:116
Detroit Pistons - Miami Heat 98:93
Orlando Magic - Brooklyn Nets 115:117
Minnesota Timberwolves - San Antonio Spurs 113:116
Utah Jazz - Cleveland Cavaliers 115:99
Los Angeles Clippers - Golden State Warriors 94:112
Portland Trail Blazers - New Orleans Pelicans 128:112

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert