Ánægður með leik sinna manna

Einar Árni Jóhannsson, þjálfari toppliðs Njarðvíkinga, var mjög svo sáttur með leik sinna manna í kvöld þegar þeir gersigruðu lið Grindvíkinga í Dominos-deild karla.

Einar er búinn að vera heilt yfir mjög ánægður með varnarleik sinna manna síðustu tvo leiki. Í kvöld var Einar einkar ánægður með annan leikhluta og svo síðustu 13 mínútur leiksins sem hann sagði að sínir menn hefðu stýrt vel. Skiljanlega átti Einar erfitt með að taka út einstaklinga til að hrósa þetta kvöldið en hann nefndi leikmenn eins og Loga Gunnarsson og Jón Arnór Sverrisson sem komu inn á af krafti í varnarleikinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert