„Get hent þessum leik í ruslið“

Þreföld tvenna hjá LeBron James í nótt dugði skammt.
Þreföld tvenna hjá LeBron James í nótt dugði skammt. AFP

Þreföld tvenna hjá LeBron James dugði Los Angeles Lakers skammt þegar liðið mætti Atlanta Hawks í NBA-deildinni í körfuknattleik í nótt.

Atlanta hrósaði sigri 117:113 og var þetta fjórða tap LA Lakers í síðustu fimm leikjum. Liðið kemst ekki í úrslitakeppnina eins og staðan er í dag en það er í 10. sæti í Vesturdeildinni. LeBron skoraði 28 stig, tók 11 fráköst og gaf 16 stoðsendingar en það dugði skammt

„Þegar upp er staðið þá töpuðum við leiknum og mér er sama hvað ég gerði. Það eina sem þetta snýst um er að vinna og ég get hent þessum leik í ruslið,“ sagði svekktur LeBron James eftir leikinn.

Kevin Durant skoraði 28 stig fyrir meistarana í Golden State sem lögðu Utah Jazz að velli 115:108. Stephen Curry skoraði 24 stig og Klay Thompson 22.

Boston hafði betur gegn Philadelphia 112:109 þar sem Gordon Hayward kom af bekknum og skoraði 26 stig fyrir Boston, þar af sex þriggja stiga körfur. Joel Embiid var stigahæstur í liði Philadelphia með 23 stig.

Úrslitin í nótt:

Atlanta - LA Lakers 117:113
Memphis - SA Spurs 107:108
New Orleans - Orlando 88:118
Boston - Philadelphia 112:109
Golden State - Utah 115:108

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert