Jakob með 19 stig í sigri

Jakob Örn Sigurðarson spilaði mjög vel í dag fyrir Borås …
Jakob Örn Sigurðarson spilaði mjög vel í dag fyrir Borås sem er komið í fjórða sæti sænsku úrvalsdeildarinnar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Jakob Sigurðarson átti frábæran leik fyrir Borås í sænsku úrvalsdeildinni þegar liðið vann 84:79-heimasigur gegn Wetterbygden Stars í dag en Jakob skoraði 19 stig, tók eitt frákast og gaf eina stoðsendingu.

Borås byrjaði leikinn betur og leiddi með 11 stigum eftir fyrsta leikhluta en Wetterbygden Stars tókst að laga stöðuna umtalsvert í öðrum leikhluta og var munurinn á liðunum tvö stig í hálfleik. Wetterbygden Stars leiddi með einu stigi eftir þriðja leikhluta en Borås vann fjórða leikhluta með sex stigum og niðurstaðan því fimm stiga sigur Borås.

Jakob spilaði í tæpar tuttugu mínútur í leiknum en Borås er í fjórða sæti deildarinnar með 44 stig, sex stigum minna en topplið Södertälje sem á leik til góða á Borås.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert