Durant bestur og lið Lebron vann

Kevin Durant, sem leikur með Golden State Warriors, var valinn …
Kevin Durant, sem leikur með Golden State Warriors, var valinn bestur í nótt. AFP

Lið LeBron James hafði betur gegn liði Giannis Antekounmpo í stjörnuleik NBA-deildarinnar í körfubolta sem fram fór í nótt, þrátt fyrir að lenda 20 stigum undir í 3. leikhluta. Lokatölur urðu 178:164.

Kevin Durant var valinn maður leiksins en hann skoraði 31 stig fyrir LeBron-liðið. Þetta er í annað sinn sem Durant er valinn bestur í stjörnuleiknum en hann hlaut sömu viðurkenningu árið 2012.

James og Antetokounmpo voru valdir fyrirliðar liðanna eftir að hafa fengið flest atkvæði í kjöri körfuboltaáhugafólks, leikmanna og fjölmiðlamanna um hverjir ættu að vera í liðunum. Grikkinn Antetokounmpo var stigahæstur allra á vellinum í gær en hann skoraði 38 stig og fór fyrir sínu liði sem skoraði heil 53 stig í fyrsta leikhluta og var 95:82 yfir í hálfleik.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert