Ægir Þór fór áfram eftir tvíframlengdan leik

Ægir Þór í varnarstöðu í leik með Regatas gegn San …
Ægir Þór í varnarstöðu í leik með Regatas gegn San Martin. Ljósmynd/Regatas

Ægir Þór Steinarsson og samherjar hans í Regatas tryggðu sér í nótt sæti í átta liða úrslitunum um argentínska meistaratitilinn í körfuknattleik.

Regatas hafði betur gegn San Martin 128:124 í æsispennandi tvíframlengdum leik og Regatas vann þar með einvígið 3:1.

Ægir Þór, sem gekk í raðir Regatas eftir að Stjarnan féll úr leik í úrslitakeppni Dominos-deildarinnar, lék í 22 mínútur og skoraði 5 stig, tók 4 fráköst og gaf eina stoðsendingu í leiknum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert