Körfuknattleiksdeild Grindavíkur hefur gert tveggja ára samning við Davíð Pál Hermannsson. Davíð er uppalinn hjá Grindavík en spilaði með Keflavík á síðasta ári og kom við sögu í 18 leikjum.
Hann lék með Haukum frá 2009 til 2014 og hjálpaði liðinu upp í efstu deild vorið 2010. Hann var aðeins 15 ára gamall þegar hann lék með Grindavík í fyrsta skipti og varð hann bikarmeistari með liðinu árið 2006.
Grindavík gekk frá tveggja ára samningi við Björgvin Hafþór Ríkharðsson fyrr í sumar, en hann kemur til félagsins frá Skallagrími.