Pavel Ermolinskij, landsliðsmaður í körfubolta, hefur náð samkomulagi við Val og mun hann leika með liðinu á næsta tímabili. Þetta herma heimildir Fréttablaðsins.
Pavel hefur leikið með KR síðan 2013 og hefur hann orðið Íslandsmeistari sex ár í röð. Hann varð einnig meistari með liðinu árið 2011 og hefur hann þrisvar sinnum orðið bikarmeistari með KR.
Valsmenn enduðu í níunda sæti deildarinnar á síðustu leiktíð, einu sæti ofar en á leiktíðinni þar á undan, er þeir voru nýliðar.
Pavel lék vel með íslenska landsliðinu í 83:82-sigri á Sviss í forkeppni EM 2021 á laugardaginn var.