Gunnar Ingi í Hauka

Gunnar Ingi í leik með Val.
Gunnar Ingi í leik með Val. mbl.is/Árni Sæberg

Körfuboltamaðurinn Gunnar Ingi Harðarson er genginn til liðs við Hauka frá Val. Gunnar er bakvörður og spilaði hann stórt hlutverk með Val á síðustu leiktíð. 

Gunnar er uppalinn hjá Ármanni en hann hefur einnig spilað með KR og Fsu. Leikmaðurinn skilaði 5,5 stigum og 2,2 stoðsendingum á síðasta tímabili. 

Gunnar spilaði með Belmont Abbey háskólaliðinu í Norður-Karólínu, áður en hann fór í Val og skoraði þar 7,6 stig að meðaltali í leik og var með 40% þriggja stiga nýtingu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert