Kyrie Irving á sjúkralistanum

Kyrie Irving
Kyrie Irving AFP

Íslandsvinurinn Kyrie Irving er á sjúkralistanum margfræga og missir í kvöld af þriðja leiknum í röð hjá Brooklyn Nets í NBA-deildinni í körfuknattleik. 

Irving glímir við meiðsli í hægri öxl samkvæmt tilkynningu frá félaginu en liðið hefur farið fremur hægt af stað á leiktíðinni. Unnið fimm leiki og tapað átta. 

Irving hefur þó staðið fyrir sínu þegar hans hefur notið við en mikla athygli vakti þegar hann og Kevin Durant ákváðu að ganga til liðs við Brooklyn fyrir þetta tímabil. Durant verður ekki leikfær fyrr en langt er liðið á tímabilið í fyrsta lagi. 

Einn byrjunarliðsmaður til viðbótar, Caris LeVert, er á sjúkralistanum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert