KR tryggði sér sæti í undanúrslitum Geysisbikars kvenna í körfubolta með öruggum 80:60-sigri á 1. deildarliði Fjölnis í Dalhúsum í kvöld.
KR-ingar voru með yfirhöndina allan tímann og unnu alla fjóra leikhlutana og leikinn sannfærandi í leiðinni.
Danielle Rodriguez skoraði 18 stig fyrir KR og Sanja Orazovic gerði 11 stig. Heiða Hlín Björnsdóttir skoraði 19 stig fyrir Fjölni og Fanney Ragnarsdóttir skoraði 14 stig.
Fyrr í dag tryggðu Valur og Haukar sér sæti í undanúrslitum. Lokaleikur átta liða úrslitanna fer fram á morgun er grannarnir Njarðvík og Keflavík eigast við í Njarðvík klukkan 16:30.